Sadomasokismi
Textabox
Þessi síða er ekki fyrir yngri en 18 ára án leyfis foreldra eða forráðamanna.  Einnig tel ég efnið eiga lítið erindi við þá sem ekki þola umfjöllun um kynlífstengd málefni.
Goddess
07.12.2008 17:05:02 / sado

#105 Vá! algjör snilld.

Var að renna yfir kink.com og rakst á þetta myndband inná Behind the scenes.

Ekkert fansí smansí eitthvað heldur bara hreint og klárt BDSM.  Þarna erum við ekki að tala um undirgefni heldur miklu fremur ferðalag drotnara og bandingja þar sem verið er að skoða, prófa og finna mörk þess síðarnefnda.   Þetta er líka spurning um hve góður drottnarinn er í að lesa bandingjann og fara ekki of mikið yfir mörk þess þolanlega.  Hver sem getur haldið á hafnarboltakylfu getur fundið út hvenær bandingi er búinn að fá nóg... meira að segja tiltölulega fljótt.

Nóg af blaðri í bili hér er slóðin:
http://news.behindkink.com/blog/default/2008/11/20/How-Far-Would-You-Push-Yourself-If-it-Only-Lasted-30-Minutes

og

http://content.behindkink.com/resources/default/items/2008/11/20/6107_s01_30_Minutes_Torment.wmv


Svo að endingu smá skamtur af mishöppum

http://news.behindkink.com/blog/default/2008/11/03/Get-Ready-for-More-Hilarious-Kink-com-Bloopers-Outtakes

http://content.behindkink.com/resources/default/items/2008/11/03/6047_s01_Bloopers_3.wmv

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 18:08:27 / sado

#103 Illdeilur

Fyrir þá sem eru eitthvað að fylgjast með BDSM senunni þá hafa menn ekki komist hjá því að taka eftir illdeilum milli UFSM (www.ufsm.freeforums.org) BDSM á Íslandi og fetishiceland (www.fetishiceland.com).  Eftir að hafa fylgst með tiltölulega einföldu og léttu máli vaxa og verða að meiriháttar vandamáli sem virðist vera langt komið með að splitta BDSM senunni í tvennt, þá stóðst ég ekki málið og tjáði mig aðeins á spjallþráðum fetishiceland.  Í stuttu máli má sjá árangurinn hér á eftir og bréfið sem ég setti inn þar á eftir.


*********************************************************************

YOU HAVE BEEN BANNED FROM USING THIS WEBSITE!


Banned Until:
Tuesday 30th September 2008 at 16:40

Ban Reason:
Fyrir að fara gegn ákvörðun vefstjórnar og pósta hlutum um félag sem hefur verið vísað út hér.

You were banned by:
Skuggi

*********************************************************************
Bréfið sem ég sendi inn á spjallþráðinn:

Undanfarna daga hefur eitt mál tröllriðið [BDSM] senunni.  Ég hef fylgst með þessu máli af hliðarlínunni og finnst málið höndlað allveg einstaklega illa.  Að mínu mati er búið að gera allt of mikið mál úr þessu og hálfpartinn kljúfa senuna í tvennt í stað þess að leysa málið á einfaldan hátt

Boltinn byrjaði víst að rúlla þegar stjórnendur UFSM (ufsm.freeforums.org) höfðu samband við einn ákveðinn aðila og sögðu honum að hann væri ekki velkominn í partý sem UFSM stóð að ásamt öðrum, eða önnur partý á þeirra vegum að svo komnu vegna nokkurra atriða.  Þetta voru hvorki alvarleg atriði, né atriði sem ekki ætti vera hægt að laga –svo það sé á hreinu. Engu að síður voru þetta atriði sem stuðuðu einhverja sem höfðu umgengist hann og gerðu það að verkum viðkomandi aðilar vildu ekki vera í partýi með honum.   Stjórnendur UFSM sátu því frammi fyrir því að þurfa að velja á milli hans og fjögurra eða fimm annara aðila sem höfðu meldað sig í partýið.

Í stað þess að leysa málið í kyrrþey og sjá til þess að hann gæti mætt í aðra viðburði og borið höfuðið hátt þá var blásið í herlúðra, hann gerður að fórnalambi dauðans (nb. honum var bara sagt að hann mætti ekki koma í partý) og almenningur kemst ekki hjá því að velta fyrir sér hvort það sé eitthvað alvarlegt að hjá honum.

Búið er að útiloka UFSM (ufsm.freeforums.org) frá fetishicleand.  Einhverjir stjórnendur inná fetishiceland hafa verið bannaðir og einhverjir hafa sagt af sér í kjölfar þessa máls.

Stjórnendur BDSM og fetishiceland.com ganga svo upp í því að skamma og hóta félagsmönnum  (t.d. mér á irkinu fyrir það eitt að segja vinum mínum sem ég hitti í partýinu  hvað ég hafi skemmt mér vel þar).

Ég kemst ekki hjá því að velta því fyrir mér hvort þarna sé undirliggjandi eitthvað annað og meira en að einum aðila hafi verið meinað að mæta í partý (fordæmi eru jú víst fyrir því að einhverjum hafi verið settur stóllinn fyrir dyrnar án þess að svona læti hafi skapast).

Í mínum huga snýst þetta akkúrat alls ekkert um þennann aðila lengur.  Hann er einfaldlega leiksoppur í valdatafli þeirra sem standa að UFSM, fetishiceland og BDSM á Íslandi.

Það er að mínu mati á ábyrgð stjórnenda að tækla svona deilumál og reyna í lengstu lög að koma í veg fyrir að senan klofni í andstæðar fylkingar.  Einu sáttatilburðirnir sem ég hef séð hingað til eru frá UFSM (sjá inná ufsm.freeforums.org).  Ef stjórn BDSM á Íslandi sýnir enga viðleitni til að leysa þetta mál þá tel ég að hún sé farin að vinna gegn hagsmunum BDSM á Íslandi sem og senunnar í heild.  Sama má segja með stjórnendur fetishiceland að þeir séu farnir að vinna gegn hagsmunum senunnar ef ekki er gengið í málið með það fyrir augum að leysa það í stað þess að berja hausnum við vegg, ritskoða og banna fólk hægri og vinstri.


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.08.2008 12:22:12 / sado

#102 Rokk

Það er stundum talað um það hvort eitthvað sé mikið eða lítið rokk.

Ég hef verið eindreginn talsmaður þess að það sé ekkert eitt meira BDSM en annað, að það sé ekki hægt að flokka BDSM sem mikið eða lítið (spurning um að búa til einhverja skilgreiningu sem greinir á milli mikils og lítils BDSM - allar tillögur vel þegnar).

Ég spyr:
Er það mikið eða lítið BDSM (eða bara rokk) að keyra niður laugarveginn á stórum jeppa með sub sem situr í farþegasætinu með hálsól og augnbindi, buxurnar á hælunum, blóðug læri og aumar geirvörtur, með aðra hendina í klofinu fróandi sér allann tímann.

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.06.2008 02:53:13 / sado

#101

Fuck it again


amen

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.06.2008 18:11:20 / sado

#100 Lonely shit

Fuck it


amen

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2008 14:37:59 / sado

#99 BDSM Bloopers

Mæli eindregið með videoinu "Another Installment of Hilarious Bloopers" frá Kink.com.

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 12:41:20 / sado

#98 Guðmundur í Byrginu og BDSM

Af hverju vill BDSM fólk hafa eins mikla fjarlægð milli sín og Guðmundar í Byrginu og mögulegt er.  Af hverju vill BDSM fólk ekki gangast við því að Guðmundur hafi verið að stunda BDSM með skjólstæðingum sínum?

Ástæðan fyrir því er mjög einföld.  Grundvallareglur BDSM ganga út frá meðvituðu samþykki sem gerir algjörar kröfur til þess að um enga þvingun sé að ræða þegar fólk ákveður að fara í BDSM leik.  Guðmundur virðist ekki einungis hafa nýtt sér stöðu sína sem stjórnandi Byrgisins og meðferðafulltrúi þeirra sem kærðu hann og þannig þvingað þær til athafna heldur einnig kemur fram í dómsorði að hann hafi ekki virt skýr skilaboð um að hætta þegar skjólstæðingur hans hafi verið búin að fá nóg.

Því má segja að Guðmundur hafi brotið gegn öllum grundvallar atriðum BDSM.

   * Hann þvingaði þær til athafna
   * Hann virti ekki persónuleg mörk
   * Hann olli þeim skaða.  Kannski ekki líkamlegum en allavegna andlegum.

Það eru einmitt þessi grundvallaratriði sem greina á milli BDSM og ofbeldis.

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 17:21:01 / sado

#97 Tveggja ára reflection á afmælisdegi Goddess Lillith.

Síðan þá hef ég upplifað hluti með henni sem ég hefði aldrei trúað að ég ætti eftir að upplifa og var ég þó búinn að reyna ýmisslegt áður.  Má allveg fullyrða að hún hafi farið með mig upp um tvær deildir í BDSM leikjum.  Ekki nóg með það heldur kynntist ég einnig Dúkkulísu sem kom inn í fjölskyldu GL haustið 2006. Var hreint stórkostlegt að sjá hvernig GL náði að byggja hana upp.  það var ekki sama manneskjan sem stendur nú styrk á eigin fótum og stóð óstyrk í fangi GL í byrjun.

Það fer ekki alltaf saman að vera dominant sadisti og hugsa vel um fórnarlömb sín á sama tíma.  Varfærnari sadisti er vandfundnari.  Er ég þá alls ekki að draga úr sadísku levelli hennar ef þannig má komast að orði.  Eiginlega sem betur fer þar sem við vorum stundum að gera hluti þar sem lítið má fara úrskeiðis til þess að valda ekki varanlegum skaða eða eitthvað verra.  Hef ég átt í meiri vandræðum með innvaxin hár eftir rakstur heldur en bata allra þeirra blóðugu sára sem hún hefur búið til á mér. Vegna varfærnarinnar kemst hún upp með að ganga miklu mun lengra heldur en aðrir þar sem ég treysti henni 100% til að gera þá hluti sem henni dettur í hug án þess að valda varanlegum skaða. Allavegna ekki án þess að hafa rætt það fyrirfram.

Ekki nóg með að hafa lyft S&M leikjunum mínum upp á hærra plan, þá dró hún fram í mér undirgefni sem ég vissi eiginlega ekki af. Hef ég upplifað algjöra sælu standandi hjá henni eða sitjandi við fætur hennar.

Goddess Lillith til hamingju með afmælið

Þú er svo sannarlega einstök.


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 08:20:54 / sado

#96 Rétt eða rangt

Dofinn

Fuck it, amen

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2008 03:32:32 / sado

#95 Trú

Fyrir þá sem ekki þekkja mig... og reyndar þá sem þekkja mig einnig en þá skapar trúin stóran sess í lífi mínu. 

Á hverjum degi fer ég með stutta bæn eftir Anthony Hopkins en hún veitir mér hvað mestan stuðning:  

"Fuck it. Amen."

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2008 10:28:36 / sado

#94 Smile of an angel

Muffled moan
accepting the intense pain
Controled breathing
giving you the power
Seeing through the blindfold
The only smile that matters
The smile of the angel

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 15:10:11 / sado

#93 Einkamal.is

Á einkamal.is eiga sér stað stundum skemmtileg samskipti.  Áður en við kíkjum á dæmi þá langar mig að benda á textann á prófílnum mínum: "Er ekki að leita að öðru en spjalli um BDSM ofl. "

**********************************************************************************************************

48 ára bi kk / Flokkur: Skyndikynni.

Hann: Mig langar að læra á þessa hluti....ertu með kennslu??

Ég
ég hef haldið nokkur námskeið í tengslum við BDSM.  Það hafa aðallega verið opin námskeið á vegum BDSM félagsins.  Hef ekki verið með einstaklingsmiðaða kennslu.

Hvað er það sem þú hefur áhuga á að læra?
 
Hann: Ég var nú að vonast til þess að koma í heimsókn til þín, og að þú mundir stjórna ferðinni.....er það óraunhæft?

************************************************************************************************************

43 ára str. kvk / Flokkur: Vinátta / Spjall

Hún:
Er ekki allt í lagi hjá þér, allt sem þú telur upp og svo MYNDIR í þokkabót, svo að lokum

úr hvaða blaði klipptirðu þessar myndir út, svo ertu búinn að vera hér inn í 8 ÁR

og ekkert gengur, breyttu kynningunni þinni og sjáðu svo til, ég er svo gáttuð að ég gjörsamlega á ekki til orð.

Breyttu kynningunni og sjáðu til,  eða þurkaður þig allan út,  við erum hér margar konur sem erum búnar að senda þennan viðbjóð á konur, og allar segja þær,  hann væri ekki heill.  Manni verður flökurt. ekki svara mér, ég endi þér strax út. oj oj oj.


Ég:
Jahérnahér

Má til með að svara þér þar sem ég var einmitt að fara að hugsa um að bjóða þér í næstu BDSM orgíu ;)

Af hverju ætti ég að breyta kynningunni?  Það komu ekki nema 3 nýjir aðilar bara í þessari viku sem vildu spjalla um BDSM.  Reyndar vildi einn þeirra fara í BDSM leik við mig en ég er ekki að leita eftir slíku hér. 

Myndirnar er allar mín eign.  Reyndar er tilgangur myndanna einmitt að skilja frá þá aðila sem engann áhuga hafa á BDSM og heillast ekki af þeim.  Þeir sem á annað borð gera það, hafa samband og líkar vel.

Reyndar skil ég ekki hvað þú ert að hneykslast á þessum myndum þar sem þú þurftir að hafa fyrir því að skoða þær.  Ekki var ég að troða þeim upp á  þig.  Finnst það pínu kómískt að einhverjar konur útí bæ séu að senda þær á milli sín og hneikslast.  Reyndar grunar mig að einhver þeirra sé ein af þeim sem hafði samband við mig  um daginn.  Förum ekki nánar út í það.

Ef þig vantar virkilegt efni til að hneiksla vinkonurnar, þá er þér velkomið að hafa samband... ég á myndir sem ég sýni bara þeim sem biðja um það.

Gangi þér vel að finna það sem þú ert að leita eftir.  Ég er löngu búinn og er í góðum málum.

kær kveðja

sado

Hún:
Fyrir þína hönd, óska ég þér bara til hamingju, því nú er árið 2008 en ekki 2001 og það segir nokkuð, en mér finnst þetta svo naíf og barnalegt enda sérðu hvað þú færð mikinn póst, segðir það ekki eitthvað, hugsaðu aðeins og hvað fólk vorkenni þér, síðan 2001.

ÞAÐ SEGIR ALLT.  Ekki veitir þér að hvatningu svo einhver sendi þér póst,  en ég þarf ekki að senda svona lagað eitt né neitt, þær eru búnar að sjá þetta, hneykslaðað.

Mér finnst þú skítugur upp fyrir haus, og ætla að loka á þig.


Ég:
Ég það hefur allveg dugað mér hingað til að vera hérna til taks fyrir þá sem vilja fræðast um BDSM eða spjalla almennt um það.

Þér er meira en velkomið að hafa þínar skoðanir á mér og meira að segja segja þeim sem þú villt frá þeim.  Það særir mig ekki neitt.  Ég stunda mitt BDSM með þeim sem ég elska og spjalla við þá og fræði sem það vilja.

Það er kannski helst að mann langi til að benda þér á að margt bendir til þess að þeir sem eru hvað mest að hneikslast á BDSM eru þeir sem hafa umtalsverðar kvatir til þessháttar athafna en þora ekki að leitast eftir útrás í þeim efnum og geta þessvegna enganvegin hugsað sér að aðrir fái það.

Þessvegna snýr öll vorkunin að þér þegar þú hleypur um bæjinn og hrópar ókvæðisorð gagnvart mér og/eða BDSM. 

Ef ég er illa lyktandi og skítugur upp fyrir haus, þá verð ég greinilega að fara þrifabað.

Góðar stundir :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 03:59:41 / sado

#92 Typpastærðir

Intresting fyrirspurn ef fyrirspurn má kalla kom sem athugasemd við síðustu færslu.  En þar er þeirri pælingu eða spurningu velt upp hvort ég stundi BDSM af því að ég sé með lítið typpi.

Það má allveg færa rök fyrir því að þar sem þeir BDSM leikir sem ég stunda snúa sjaldnast að typpinu... (tja nema þegar verið að tjóðra það, klemma eða stinga með nálum) og  tala nú ekki um alla áhersluna á allt dótið. Að ég sé með öllu þessu að fela það hversu lítið typpi ég sé með.

Stærð segir ekki allt (segja flestir) og ég hef ekki mikinn samanburð við typpi annara karla og enn færri kvenna.  Það sker sig allavegna ekki mikið úr í sturtuklefum sundlauganna.  Bíspertir tillar þeirra karla sem ég hef leikið við hafa ekkert verið svo fjarri lagi.  Sumir beinni og aðrir beyglaðri. Nokkrir styttri og aðrir lengri.  Því miður (fyrir þá sem eru að velta sér uppúr stærðinni) þá fóru ekki fram samanburðarmælingar á lengd og breidd þegar tækifæri gafst.

Nákvæmar mælingar með málböndum og reglustikum hafa ekki verið framkvæmdar síðan í barnæsku.


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 12:20:19 / sado

#91 10 ára afmæli BDSM á Íslandi

Úha!  Gott BDSM partý. 

 Góður staður, gott fólk, nægt rými til þess að allir sem vildu gátu verið saman í hóp eða í prívati inná herbergi.  Fyrir mat áttum við GL mindblowing leik þar sem nýjir hlutir voru reyndir á meðan hún var að taka sig til. Eftir matinn var haldin ræða og blásið á kertin á afmælissubbinum.  Það sullaðis náttúrulega bara óvart á hana þegar kertin voru tekin af henni.  Skemmtilegir samkvæmisleikir hristu hópinn vel saman.  Kínkið var slegið úr boxinu með stálpísknum hennar GL  (að maður skuli hafa verið flengdur með því morðvopni) og svo smátt og smátt fór að bera meira á leikjum.  Fékk aðeins að drottna yfir og meiða Dúkkulísu og binda hana síðan niður í rúm.

Heljarinnar fótósessjón fór fram á einum ganginum á meðan aðrir voru inná herbergjunum eða í salnum. Nokkrir heltust úr lestinni eftir því sem leið á nóttina en nokkrir héldu það út til kl 10. 

Hjálpaði GL með eitt stórkostlegt verk og var gjörsamlega búinn eftir það.  Tók mig samt til í andlitinu og skokkaði aftur inn í sal.

GL sendi mig í bælið um 8 leitið þegar ég var farinn að dorma með svipuna í hendinni eftir að hafa bankað bakið á einum sjálfboðaliða rækilega.  Reyndar átti þetta bara að vera rétt svona smá hýðing.... bara svona rétt að prufa en hann hékk í samtals 5 tíma í ólunum til klukkan 10 eins og áður sagði.

Vertinn var ánægður með þetta eins og gestirnir en spurði hvað allt kertavaxið væri að gera á gólfinu í salnum. hmmmmm


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 53580
Þínir flokkar
Leitarbox

Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti