Úha! Gott BDSM partý.
Góður staður, gott fólk, nægt rými til þess að allir sem vildu gátu verið saman í hóp eða í prívati inná herbergi. Fyrir mat áttum við GL mindblowing leik þar sem nýjir hlutir voru reyndir á meðan hún var að taka sig til. Eftir matinn var haldin ræða og blásið á kertin á afmælissubbinum. Það sullaðis náttúrulega bara óvart á hana þegar kertin voru tekin af henni. Skemmtilegir samkvæmisleikir hristu hópinn vel saman. Kínkið var slegið úr boxinu með stálpísknum hennar GL (að maður skuli hafa verið flengdur með því morðvopni) og svo smátt og smátt fór að bera meira á leikjum. Fékk aðeins að drottna yfir og meiða Dúkkulísu og binda hana síðan niður í rúm.
Heljarinnar fótósessjón fór fram á einum ganginum á meðan aðrir voru inná herbergjunum eða í salnum. Nokkrir heltust úr lestinni eftir því sem leið á nóttina en nokkrir héldu það út til kl 10.
Hjálpaði GL með eitt stórkostlegt verk og var gjörsamlega búinn eftir það. Tók mig samt til í andlitinu og skokkaði aftur inn í sal.
GL sendi mig í bælið um 8 leitið þegar ég var farinn að dorma með svipuna í hendinni eftir að hafa bankað bakið á einum sjálfboðaliða rækilega. Reyndar átti þetta bara að vera rétt svona smá hýðing.... bara svona rétt að prufa en hann hékk í samtals 5 tíma í ólunum til klukkan 10 eins og áður sagði.
Vertinn var ánægður með þetta eins og gestirnir en spurði hvað allt kertavaxið væri að gera á gólfinu í salnum. hmmmmm